Lýsing
HiluX LED Driver Powered by Shelly kemur í stað hefðbundins straumgjafa og gerir 24V LED lýsingu snjalla, án sérstakrar snjallstöðvar og án aukadósar í vegg.
Þrjár leiðir til að dimma
- Shelly appið: dimmun, tímastillingar og senur yfir Wi-Fi
- Venjulegur þrýstirofi tengdur á P klemmu (Push-DIM), virkar án apps og nets
- Shelly BLU fjarstýring yfir Bluetooth
Tækniupplýsingar
- Úttak: 24V DC fast spenna, allt að 120W
- Inntak: 220–240V AC, 50Hz (0,52A), aflstuðull 0,95
- Wi-Fi 802.11 b/g/n 2,4GHz og Bluetooth (BLE)
- Klemmur með örmum fyrir 0,75–2,5 mm² víra (afeinangrun 8–9 mm)
- 8 póla tengibox til að raðtengja fleiri drivera (óþarft fyrir stakt ljós)
- Stærð: 230 × 52 × 30 mm, tengibox 85 × 54 × 25 mm
- Þyngd: 0,484 kg
- Þéttleiki: IP21 (til notkunar innandyra)
Vörunúmer framleiðanda: 80-870-SH-120W








