Vöruflokkar
[mk_fancy_title font_family=”none”]

Skilmálar og skilyrði

Upplýsingar um félagið:

Rafgeiri  ehf
kt. 560320-0430
VSK # 137224
Heimili  Reynigrund 12
300 Akranesi
Sími 556-5577
email: info@snjallt.is

Almennt
Rafgeiri ehf áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Afhending vöru
Pantanir sem berast fyrir hádegi eru að jafnaði afgreiddar næsta virkan dag. Við leitumst við að koma öllum sendingum frá okkur eins fljótt og hægt er. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Pöntunum er dreift með TVG. Um afhendingu sendinga með TVG gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar TVG um afhendingu vörunnar. Rafgeiri ehf ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Rafgeira ehf  til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Vinsamlegast hafið samband við Rafgeira ehf með spurningar.

Verð
Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.

Skattar og gjöld
Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.

Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Gölluð vara

Komi upp galli í vöru gilda almenn lög um neytendakaup nr. 48/2003 athugið að tilkynna þarf um galla innan þess tímaramma sem lög gera ráð fyrir.[/mk_fancy_title]

Hafa samband