Loading...

Homey Pro 2023

kr. 79.900

Á lager

Vörunúmer: 8719327218198 Flokkur:
Loading...

Lýsing

Homey snjallstöðin er að okkar mati sú flottasta á markaði m.a vegna þess hversu breitt úrval snjalltækja stöðin styður og fjölda þráðlausra staðla.  (Wifi, Bluetooth,Zigbbe,Zwave, 433 Mhz, 868 Mhz, Infrared)

Snjallstöðin getur tengst yfir 50,000+ tækjum frá 1000+ framleiðendum og fer ört vaxandi.

Snjallstöðin kemur í tveimur útgáfum, Homey Pro og Homey Bridge.

Homey Pro er ekki háð interneti/cloudi og öll vinnsla fer því fram innan veggja heimilisins. Hægt er svo að auka drægni innan húss með því að bæta við Homey Bridge sem virkar þá eins og loftnet sem hentar vel ef húsið er t.d á fleiri en einni hæð.

Homey Bridge stöðina  er einnig hægt að nota  sem sjálfstæða snjallstöð án þess að vera með Homey Pro og tengist hún þá Homey cloud og virkar vel fyrir einfaldari uppsetningar en er alltaf háð því að ná sambandi við homey cloud í gegnum internetið og ekki eins margir valmöguleikar til flóknari aðgerða eins og í Homey Pro.

Vegna fjölda framleiðanda sem stöðvarnar styðja getur þú valið það besta hverju sinni í snjallvæðinguna t.d búnað frá Shelly, Unifi, Fibaro, Aoetec, Sensative, Doorbird, Ring, Danalock, Ikea, Philips hue, KNX o.s.frv. Homey Pro stöðin brúar svo bilið þannig að þú getur t.d stýrt flest öllum búnaði beint í Apple homekit eða beint úr Homey appinu.

Homey hentar því fullkomlega ef þú vilt geta stýrt sem flestu úr einu appi í stað þess að þurfa að nota mörg öpp.

Sem dæmi er hægt að skipta út Smarthings, Philips hue, Ikea, Fibaro eða þeim stöðvum sem þú ert mögulega að nota núna og setja upp Homey Pro í staðinn og nota áfram sama snjallbúnað.

Nánari upplýsingar á heimasíðu framleiðanda