Loading...

Shelly BLU Gateway Gen3 USB Bluetooth gátt (Wi-Fi/Bluetooth)

kr. 3.790

Lítill USB-A gátt (gateway) sem tengir Shelly BLU Bluetooth-tæki við Wi-Fi netið þitt. Hún fylgist með og stýrir samhæfðum Shelly BLU tækjum, þar á meðal Shelly BLU TRV ofnalokum, og gerir þau aðgengileg bæði staðbundið og í gegnum Shelly Cloud.

  • Bluetooth 4.2 og Wi-Fi (802.11 b/g/n)
  • Hægt að para allt að 5 stk Shelly BLU TRV
  • Knúin beint úr USB-A tengi, með pörunarhnapp og LED ljósi
  • Stuðningur við scripting, MQTT og webhooks
Loading...

Lýsing

Shelly BLU Gateway Gen3 er nett og snjöll Bluetooth-í-Wi-Fi gátt með USB-A tengi. Hún fylgist með og stýrir samhæfðum Shelly Bluetooth-tækjum, þar á meðal Shelly BLU TRV ofnalokum, og kemur með sérstökum pörunarhnapp sem auðveldar tengingu við Bluetooth-tæki.

Gáttin er lítil en nauðsynleg í snjallheimilinu: hún tengir Shelly BLU tækin við heimilisnetið svo hægt sé að skoða stöðu þeirra, setja af stað sjálfvirkni og stjórna þeim hvar sem er. Hún vinnur hljóðlega í bakgrunni og breytir ekki því hvernig þú notar tækin.

Helstu eiginleikar

  • Bluetooth 4.2 og Wi-Fi (802.11 b/g/n)
  • Nett USB-A hönnun, knúin beint úr USB-A tengi
  • Hægt að para mörg BLU tæki, þar á meðal allt að 5 stk Shelly BLU TRV
  • Pörunarhnappur fyrir fljótlega Bluetooth-tengingu
  • LED ljós sýnir stöðu tengingar, pörun og OTA uppfærslur
  • Staðbundin stjórn og skýstjórn á Shelly BLU TRV
  • Innbyggt vefviðmót til að fylgjast með, stjórna og breyta stillingum
  • Wi-Fi Range Extender: getur lengt drægni Wi-Fi netsins
  • Scripting, tímasetningar (allt að 20), webhooks og MQTT
  • Samþætting við Amazon Alexa, Google Home og Samsung SmartThings
TÆKNIUPPLÝSINGAR
Gerð S3GW-1DBT001
Stærð (HxBxD) 60x27x11 mm
Þyngd 10 g
Litur Hvít
Aflgjafi 5 V frá USB-A tengi
Orkunotkun < 1 W (allt að 5 W í toppum)
Umhverfishiti -20 °C til 40 °C
Rakastig 30 % til 70 % RH
Wi-Fi 802.11 b/g/n, 2401 – 2483 MHz, < 20 dBm, allt að 30 m innandyra
Bluetooth BLE 4.2, 2402 – 2480 MHz, < 10 dBm, allt að 10 m innandyra
Örgjörvi Shelly ESP32-C3, 8 MB flash
Dulkóðun Já

Frekari upplýsingar

Þyngd 0.01 kg
Ummál 6 × 2.7 × 1.1 cm