Lýsing
Shelly i4 Gen4 er snjall 4 rása inngangsstýring sem tengir núverandi þrýstirofa eða hnappa við snjallkerfið. Hún stýrir ekki álagi beint heldur sendir skipanir á önnur Shelly tæki, senur eða tæki sem stýra má með HTTP og MQTT. Hún er nógu lítil til að fara á bak við rofa eða innstungu í dós.
Helstu eiginleikar
- 4 inngangar: tengdu allt að fjóra rofa eða hnappa (SW1-SW4) og láttu þá virkja senur eða samstilltar aðgerðir
- Wi-Fi, Bluetooth, Zigbee og Matter: Wi-Fi (802.11 b/g/n/ax) og Bluetooth 5.0, Matter er sjálfgefið en hægt er að skipta yfir í Zigbee (ýtt 5 sinnum á hnappinn)
- Enginn innbyggður gengill: einingin skiptir ekki álagi sjálf, heldur stýrir ytri gengjum og tækjum
- BLE gátt og útvíkkari: brú fyrir Shelly BLU tæki og virkar líka sem Wi-Fi og Zigbee útvíkkari
- Staðbundin stýring: innbyggt vefviðmót, virkar á heimanetinu og einnig í gegnum Shelly Cloud
- Samþætting: Matter, Alexa (í gegnum sýndartæki í rútínu), HTTP API, MQTT, webhooks, scripting og KNX net/IP
- Orkunotkun undir 1 W, 110-240 V~, þarf bæði L og N (núllleiðara)
Athugið: ef engin snjallstöð er til staðar á heimilinu og samband við Shelly Cloud rofnar virka senur í skýinu ekki á meðan.
| TÆKNIUPPLÝSINGAR | |
|---|---|
| Gerð | S4SN-0A24X |
| Inngangar | 4 rofa/hnappainngangar á skrúfuklemmum (SW1-SW4) |
| Útgangar | Engir |
| Spenna | 110-240 V~, 50/60 Hz |
| Orkunotkun | < 1 W |
| Núllleiðari | Nauðsynlegur |
| Tenging | Wi-Fi 802.11 b/g/n/ax, Bluetooth 5.0, Zigbee 802.15.4, Matter |
| Stærð (HxBxD) | 37 x 42 x 15 mm |
| Þyngd | 19 g |
| Hitastig | -20 °C til 40 °C |
| Uppsetning | Í dós (bak við rofa eða innstungu) |
| Vírar | 0,5 til 4 mm² |








