Loading...
Snjallt.is Pottastýring - Shelly Walldisplay - hálfsjálfvirk

Price range: kr. 89.900 through kr. 124.900

Snjöll pottastýring sem samanstendur af veggskjá sem þarf að tengjast í 230V sem talar svo við Shelly relay yfir Wi-Fi sem stjórna botn & flæðiloka.

Báðar stýringar bjóða uppá að vera með heitan & kaldan pott en bæta þarf við auka búnaði við minni pakkann ef nota á fyrir bæði.

Athugið að stýringin inniheldur einungis rafmagnsstjórnbúnaðinn en ekki flæði/botnloka og það sem tengist vatnshlutanum.

Loading...

Lýsing

Athugið að pakkinn hjá okkur inniheldur einungis rafmagnsstýringuna ekki flæði, botnloka eða lagnahluta.

Stýringin býður uppá að skanna QR kóða og geta fengið sama viðmót og er á skjánum í síma og fjarstjórnað þannig pottinum athugið að stýringin þarf þá að vera tengd WiFi.

Þessi pakki hentar vel til uppfærslu á eldri stýringum eða ef menn vilja bara vera með handvirkt blöndunartæki/blöndunarloka og láta óskahitann stjórnast útfrá því.

Kostir:

  • Wi-Fi stýring sem þú getur tengst hvaðan sem er.
  • Hægt er að staðsetja skjá hvar sem er í húsinu svo framarlega sem hann sé í WiFi sambandi og komist í 230V.
  • stillanlegt óskahitastig en passa þarf að handvirkur blöndunarloki/blöndunartæki sé stilltur á nógu hátt hitastig. (hærra en óskahita)
  • Stillanleg seinkun á botnloka og stýringin byrjar ekki að hleypa vatni í pottinn fyrr en hún er orðin sátt við flæðishita.
  • Stillanlegur hámarks rennslistími svo vatn renni ekki í pottinn að óþörfu.
  • Sjálfvirkt viðhald á Óskahitastigi sem er stillanlegt (default 1°vikmörk)
  • App í síma með því að scanna QR kóða á skjánum.
  • Hægt er að læsa stillingum á skjánum fyrir hinum almenna notanda svo ekki sé hægt að eiga við stillingar.
  • Mögulegt fyrir umsjónaraðila að fá aðgengi að vefumsjónarborði til að geta þjónustað sínar pottastýringar og fylgst með stöðu.

 

📄 Leiðbeiningar (PDF)

Frekari upplýsingar

Pottastýring

Lítill skjár 4", Stór skjár 6,95 "