Lýsing
Athugið að pakkinn hjá okkur inniheldur einungis rafmagnsstýringuna ekki flæði, botnloka eða lagnahluta.
Stýringin býður uppá að skanna QR kóða og geta fengið sama viðmót og er á skjánum í síma og fjarstjórnað þannig pottinum athugið að stýringin þarf þá að vera tengd WiFi.
Þessi pakki hentar vel til uppfærslu á eldri stýringum eða ef menn vilja bara vera með handvirkt blöndunartæki/blöndunarloka og láta óskahitann stjórnast útfrá því.
Kostir:
- Wi-Fi stýring sem þú getur tengst hvaðan sem er.
- Hægt er að staðsetja skjá hvar sem er í húsinu svo framarlega sem hann sé í WiFi sambandi og komist í 230V.
- stillanlegt óskahitastig en passa þarf að handvirkur blöndunarloki/blöndunartæki sé stilltur á nógu hátt hitastig. (hærra en óskahita)
- Stillanleg seinkun á botnloka og stýringin byrjar ekki að hleypa vatni í pottinn fyrr en hún er orðin sátt við flæðishita.
- Stillanlegur hámarks rennslistími svo vatn renni ekki í pottinn að óþörfu.
- Sjálfvirkt viðhald á Óskahitastigi sem er stillanlegt (default 1°vikmörk)
- App í síma með því að scanna QR kóða á skjánum.
- Hægt er að læsa stillingum á skjánum fyrir hinum almenna notanda svo ekki sé hægt að eiga við stillingar.
- Mögulegt fyrir umsjónaraðila að fá aðgengi að vefumsjónarborði til að geta þjónustað sínar pottastýringar og fylgst með stöðu.




